Ragnheiður Sigurðar Bjarnarson

Sköpunin

Ég vinn út frá hugmyndum sem koma til mín í tíma og ótíma. Þær hrannast inn í hausinn á mér, veltast þar um þangað til að nokkrar sameinast og á endanum verður til röð verka eða sýning.

Ég skapa hugmyndir en þær velja sér svo efniviðinn sem unnið er með. Þess vegna vinn ég í mismunandi miðla og hef tileinkað mér forvitni, nýsköpun og að tileinka mér nýtt handverk.

Uppruni minn er í dansi og danshönnun og síðar fer ég út í myndverk og skúlptúra. Oft er hreyfingin ekki langt undan þegar ég er að skapa, stundum er hún sýnileg en oftar en ekki þá er hún falin í ferlinu.

Ég lifi fyrir að skapa eitthvað nýtt sama hvort það sé listaverk, sýningar, sýningarstaðir, hátíðir eða námsefni. Ég er yfirleitt aldrei uppiskroppa með hugmyndir til að vinna í, því er frekar öfugt farið.

Til að skapa þarf ég næringu og ég nærist í kyrrð og þögn. Náttúran gefur mér bæði og leyfir bæði huga og líkama að slaka algerlega á. Náttúran hleður mig og ég leita til hennar þegar mig vantar innblástur. Hún er krafturinn í sköpuninni.